18/03/2022
Kæru vinir
Það er mér sönn ánægja að tilkynna ykkur að við erum farin að taka á móti bókunum aftur eftir eigendaskipti á salnum.
Salurinn okkar Húnabúð leigist út án veitinga og er með leyfi til kl. 03:00 um helgar.
Endilega hafið samband í síma 612-3029 eða tölvupóst [email protected] ef ykkur vantar sal fyrir tilefnið:
• Árshátíðir
• Brúðkaup
• Þorrablót
• Jólahlaðborð
• Fermingar
• Erfidrykkjur
• Starfsmanna skemmtanir
• Móttökur
• Útskriftaveislur
• Afmæli og fl. og fl.
Salurinn er í húsnæði að Skeifunni 11, 108 Reykjavík. Salurinn er á 3 hæð og með lyftu. Húsið skiptist í veislusal, kaffieldhús, bar, forstofu og salerni.
Komið er inn í forstofu þar sem eru fatahengi og klósett. Salurinn er mjög bjartur og hefur einstaklega góða aðstöðu fyrir hvers konar skemmtiatriði eða annan flutning vegnar lögunar. Hljóðkerfið er mjög gott.
Gott bílastæði er fyrir framan húsið og gott aðgengi. Húsið er fjarri íbúðabyggð.
Allt að 130 í sæti,
Allur borðbúnaður fylgir
Kaffiuppáhellingarvél
Hljóðnemi, hátalarkerfi og mixer
Tengi fyrir iphone, tölvur osfrv.
DVD spilari
Piano á staðnum.
Móttökueldhús, með stórum ísskáp, uppþvottavél og helstu áhöldum.
Dúkar leigðir út.
Einn-tveir starfsmaður fylgir ávallt sal gegn gjaldi + þrif í lokin.
Salurinn leigist út án veitinga.
Getum útvegað dinner- og danstónlist eftir þörfum gegn aukagjaldi.
Frekari upplýsingar og bókanir fást í síma 612-3029, netfang [email protected]