20/05/2022
Húnabúð er fallegur salur á þriðju hæð í Skeifunni 11a með leyfi fyrir allt að 130 manns.
Ágætis dansgólf er á staðnum sem jafnframt má nota til að raða upp stólum ef um kynningu/fund er að ræða. Ágætur bar er á staðnum sem leigutaka er heimilt að nota. Jafnframt er öflugt hljóðkerfi á staðnum og hljóðnemi.
Salurinn er með leyfi til kl. 03:00 um helgar og til kl. 01:00 virka daga.
Gott aðgengi er fyrir fatlaða, lyfta og salerni fyrir fólk í hjólastól.
Eldhúsið er búið hitaofni, eldavél, stórum ísskáp, kaffikönnu og hitakönnu.
Leirtau (matardiskar, kaffidiskar, súpuskálar, kaffibollar og undirskálar, vatnsglös, bjórglös, freyðivíns- rauðvíns – og hvítvínsglös) er til staðar.
Húnabúð veislusalur leigist út án veitinga og er leigutaka og gestum hans þá heimilt að koma með eigin veitingar, drykki og áfengi án þess að innheimt sé svokallað tappagjald.