16/04/2023
Aðalvideoleigan Lokar 6 pistil
Elsku fallegu frábæru viðskiptavinir, velunnarar og allir aðrir til sjávar og sveita
Það er nefnilega svolítið þannig að meðan við mannfólkið erum upptekin við að gera stóru plönin…….. þá hlægja guðirnir!
Laugardagurinn 1 apríl átti að vera síðasti opnunardagur Aðalvideoleigunar eftir stóra planinu, en á meðan voru guðirnir að sjáfsöguðu að hlægja að, hvað var mikið eftir af frábærum kvikmyndum, sem að þurfa að finna sér nýtt heimili.
Til að mæta þessu skopskyni blessuðu guðanna höfum við bara eitt svar.
NÚ VIÐ OPNUM BARA AFTUR --- VERÐUM MEÐ SKYNDIOPNUN SEM BYRJAR Á Mánudaginn 17-04 OG VERÐUR TIL OG MEÐ SUNNUDEGINUM 23-04...DVD TIL SÖLU - ALLT Á AÐ FARA
OPNUNARTÍMAR ALLA DAGANNA
Mánudag …17-04 .....16:00 til 23:30
Þriðjudag …18-04 ......16:00 til 23:30
Miðvikudag 19-04 …..16:00 til 23:30
Fimmtudag 20-04 .….16:00 til 23:30 Gleðilegt Sumar
Föstudag … 21-04…...16:00 til 23:30
Laugardag ..22-04…...15:00 til 23:30
Sunnudag ..23-04…...15:00 til 23:30 loka loka loka dagur
Allra allra síðasta tækifærið til að komast yfir fullt af góðum kvikmyndum…Fyrir lítið fé …Allt á að fara…frábær lækkuð verð….
Þá erum við enþá að safna í lokunarsjóðinn og þeir sem eru aflögufærir beðnir um að hugsa til okkar . hér eru upplýsingar til að koma þeim hugsunum í verk. . (Aðalfélagið 570914 0490 - 0301-26-004907)(Gott er að setja í skýringar “styrkur”)
Dreifing á þessum pósti er með öllu og að fullu bæði löglegur og æskilegur gjörningur (með fyrirfram þökkum)
Þessir aurar munu koma hundraðfallt til baka
Þökkum innilega fyrir okkur.
Aðalvideoleigan
Klapparstíg 37
Verið velkomin
ÁST OG FRIÐUR
Aðal-Reynir